13 Janúar 2011 12:00

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Gömlu-Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gömlu-Hringbraut í vesturátt, að Smáragötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 278 ökutæki þessa akstursleið og því ók tíundi hluti ökumanna, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórir óku á 70 km hraða eða meira.

Eftirlit lögreglunnar á Gömlu-Hringbraut var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.