5 Janúar 2011 12:00

Brot 219 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Njarðargötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 887 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrjátíu og fjórir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 84. 

Á umræddum vegarkafla hefur verið nokkuð um umferðaróhöpp og þannig var vöktun lögreglunnar tilkomin. Hún mun jafnframt verða við hraðamælingar á fleiri slíkum stöðum á næstunni.