16 Mars 2011 12:00

Brot 145 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Bústaðavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 791 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 103.

Akstursskilyrði á Hringbraut í gær voru slæm en þá gekk á með miklum éljum.