5 September 2019 14:01

Brot 141 ökumanns var myndað á Hringbraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 3. september til fimmtudagsins 5. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 11.788 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 105. Fimm ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.