11 Mars 2011 12:00

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á móts við Meistaravelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 401 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.