25 Júní 2020 09:09

Brot 94 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 22. júní til miðvikudagsins 24. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 12.509 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.