17 Ágúst 2020 13:40

Brot 196 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 14. ágúst til mánudagsins 17. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á þremur sólarhringum fóru 23.685 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 99.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.