17 Ágúst 2020 09:31

Brot 96 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 12. ágúst til föstudagsins 14. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 17.888 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 107.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.