24 Ágúst 2020 10:42

Brot 79 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 19. ágúst til föstudagsins 21. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 18.196 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.