20 Ágúst 2020 09:51

Brot 88 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 17. ágúst til miðvikudagsins 19. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 18.284 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.