30 September 2020 10:58

Brot 69 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 28. september til miðvikudagsins 30. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 13.205 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 91. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.