9 Október 2020 08:52

Brot 106 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Furumel. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 396 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 60 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.