13 Nóvember 2020 10:31

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 6. nóvember til miðvikudagsins 11. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á fimm dögum fóru 35.118 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.