18 Nóvember 2020 13:09

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 17. nóvember til miðvikudagsins 18. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á einum sólarhring fóru 3.392 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.