26 Nóvember 2020 15:57

Brot 80 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, við Furumel. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 435 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Tólf óku á 60 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að éljagangur og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.