11 Febrúar 2021 10:39

Brot 94 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, við Brávallagötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 364 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Átta óku á 60 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að éljagangur og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.