22 Febrúar 2021 10:50

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 18. febrúar til föstudagsins 19. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á einum sólarhring fóru 5.561 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.