8 Mars 2021 13:29

Brot 247 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 5. mars til mánudagsins 8. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á þremur sólarhringum fóru 16.408 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.