6 Apríl 2021 13:21

Brot 164 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 31. mars til þriðjudagsins 6. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á sex sólarhringum fóru 25.476 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 81 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 110. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.