9 Apríl 2021 13:53

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 6. apríl til föstudagsins 9. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á þremur sólarhringum fóru 12.808 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 81 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 99. Tólf ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.