20 September 2021 15:57

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á móts við Vesturbæjarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 325 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Átta óku á 60 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 72.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.