26 Maí 2009 12:00

Eins og fyrr sagði voru brot 64 ökumanna mynduð á Hringbraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, að Birkimel. Á einni klukkustund, frá kl. 20 til 21 fóru 510 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Átta óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 86.