25 Febrúar 2022 10:07

Brot 56 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á móts við Hringbraut 52. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 438 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.