14 September 2022 13:04

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á móts við Vesturbæjarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 329 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 51 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.