20 Janúar 2023 09:22

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 18. janúar til fimmtudagsins 19. janúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á einum sólarhring fóru 6.804 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82. Engu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.