18 Mars 2015 15:59

Brot 167 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, rétt vestan Bústaðavegar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 717 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 102.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.