13 Ágúst 2015 13:06

Brot 210 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, skammt vestan Bústaðavegar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 793 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrjátíu og tveir óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 97.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.