21 Janúar 2016 16:49

Brot 216 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, skammt vestan Bústaðavegar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 814 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrjátíu og þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.