27 Júlí 2017 17:03

Brot 327 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, skammt vestan Bústaðavegar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 903 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sextíu og átta óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 98.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.