25 Júlí 2017 16:13

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, við Furumel. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 457 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.