20 Október 2009 12:00

Brot 358 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í dag og í gær. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á tuttugu og fjórum klukkustundum fóru 14.900 ökutæki þessa akstursleið og því óku rúmlega 2% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjörutíu og níu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 96. Á sama tímabili óku fjórir gegn rauðu ljósi á þessari akstursleið.