29 September 2017 09:02

Brot 163 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Bústaðavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 674 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Átján óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á með hraðamælingunni stóð.