16 Nóvember 2017 10:07

Brot 162 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Bústaðavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 866 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og fimm óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 97.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á með hraðamælingunni stóð.