15 Janúar 2018 10:04

Brot 120 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Bústaðavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 855 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Ellefu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.