22 Mars 2018 14:35

Brot 199 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá þriðjudegi til miðvikudags. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tuttugu og tveimur klukkustundum fóru 5.877 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Áttatíu og tveir óku á 80 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 102.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.