22 Mars 2018 14:40

Brot 188 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudegi til fimmtudags. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tæplega tuttugu og fjórum klukkustundum fóru 6.367 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimmtíu og sjö óku á 80 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 100.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.