27 Mars 2018 16:50

Brot 180 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudegi til þriðjudags. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tæplega tuttugu og fjórum klukkustundum fóru 6.703 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sextíu og sex óku á 80 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 115.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.