4 Apríl 2018 13:57

Brot 253 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 28. mars til þriðjudagsins 3. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á sex dögum fóru 34.716 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 90 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Átján óku á 100 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 138.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.