9 Apríl 2018 14:25

Brot 96 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 6. apríl til mánudagsins 9. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á þremur dögum fór 20.141 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 90 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Átta óku á 100 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 134.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.