27 Apríl 2018 15:40

Brot 102 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 25. apríl til föstudagsins 27. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur dögum fóru 12.585 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 98.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.