30 Apríl 2018 12:44

Brot 293 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 27. apríl til mánudagsins 30. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á þremur dögum fóru 25.933 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 137.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.