16 Febrúar 2010 12:00

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Birkimel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 618 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.