27 Júlí 2018 16:00

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 26. júlí til föstudagsins 27. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tæplega einum sólarhring fóru 5.947 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 87 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.  Sá sem hraðast ók mældist á 117.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.