30 Júlí 2018 13:04

Brot 147 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 27. júlí til mánudagsins 30. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á u.þ.b. fjörutíu klukkustundum fóru 17.099 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.