3 Ágúst 2018 16:21

Brot 167 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 30. júlí til föstudagsins 3. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tæplega fjórum dögum fóru 26.226 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.