9 Ágúst 2018 13:11

Brot 195 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 3. ágúst til þriðjudagsins 7. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á  fjórum dögum fóru 23.408 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Hinir brotlegu óku á 80 km hraða eða meira, en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 109.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.