2 Október 2018 15:55

Brot 140 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 27. september til þriðjudagsins 2. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tæplega fimm dögum fóru 31.480 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.