27 September 2018 15:16

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 26. september til fimmtudagsins 27. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á rúmlega einum sólarhring fóru 8.713 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.