5 Febrúar 2010 12:00

Brot 85 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, að Furumel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 627 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Níu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 79.