18 Janúar 2019 11:19

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, við Vesturvallagötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 351 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að myrkur og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.